Kvöldskóli fyrir karlmenn
Hvert námskeið er 10 vikur og lýkur með skriflegu prófi.
Nemendur fá viðurkenningarskjal í lok námskeiðsins, sem þeir geta framvísað á alþjóðlegum markaði.
Námskeiðsnr: | Námskeiðslýsing | Haldið |
015501 | Hvernig á að smyrja brauðsneið án þess að setja elhúsið á hvolf. Skref fyrir skref, sett fram á myndrænan hátt |
Mánudaga 17.00-18.30 |
015402 | Klósetpappír, er það satt að maður eigi sjálfur að setja nýja rúllu á klósettpappírshaldarann? Verkleg æfing á verkstæðinu |
Þriðjudaga 18.00-20.00 |
035603 | Á að lyfta klósettsetunni áður en maður pissar? Er mögulegt að pissa án þess að hitta gólf, veggi eða setuna? Verklegar æfingar |
Mánudagar 18.30-20.00 |
035604 | Grundvallarmunur á baðherbergisgólfinu og þvottakörfunni Mynda-, ferla- og skipurita – sýning |
Föstudaga 16.30-21.30 |
035605 | Er mögulegt að vera góður elskhugi til lengri tíma litið? Farið verður í grundvallarmuninn á milli ”einnarnæturgamans” og innhaldsríks kynlífs. Þetta námskeið er í 3 þrepum. ”Það þarf meira en tippi til” ”Tímasetning og alúð í verki” ”Konur elska með öllum kroppnum”. Skriflegt próf og meðmæli ”ástkonu” eru nauðsynleg til að færast á milli þrepa. |
Mánudaga 17.30-19.00 |
052206 | Tilvistarkreppa – hefur þú tapað betri helmingnum af sjálfum þér? Stuðningshópar og heimsóknir til íþróttamanna sem hætt hafa að leika. |
Laugard. 19.00-20.30 |
072407 | Lært að leita að hlutum Byrjað verður á því að fara í gegnum hvar hlutir eru geymdir vanalega og stress- og öskurviðbrögð æfð. Leikþættir og raunverulegar lífsreynslusögur |
Miðvikud. 18.00-21.00 |
025408 | Að gefa konunni blóm og tylligjafir hefur ekki skaðleg áhrif á heilbrigðið. Sett fram í mynd- og hljóðformi |
Föstudaga 17.00-20.00 |
011709 | Heilbrigðir menn spyrja til vegar þegar þeir villast Gestafyrirlesarar og dæmi frá raunveruleikanum |
Miðvikud. 19.30-21.00 |
102210 | Konan undir stýri. Er mögulegt að sitja rólegur og hreyta ekki í hana ókvæðum í föstudagsumferðinni Bílhermir |
Mánudaga 18.30-20.00 |
101811 | Hugsum í víddum Farið verður í grunnmismuninn á milli mömmur og kærustu/konu Handbók og hlutverkaleikir. |
Þriðjudaga 20.00-21.00 |
171513 | Hvað er samhengið á milli leikja í ensku deildinni og merkisdaga í fjölskyldunni? Gerð persónulegra samhengiskorta og ”Til hamingju…”æfingar |
Þriðjudaga 18.00-19.30 |
Skráningarblað
Nafn:
Hjúskaparstaða: Ár frá því að foreldrahúsum var yfirgefið: Fyrri kunnátta: Ryksuga Ná í börnin Uppvask Ná í börnin á réttum tíma Þvottur Grunnfærni í innkaupum Búa um rúm Leiðbeinendur munu hafa samband við umsækjendur, til ráðleggingar um hvaða námskeiðaval og hvaða stig hentar einstaklingnum Námskeiðshaldarar |