Lyse øyeblikk

Dauðinn dó en lífið lifir

Dauðinn dó, en lífið lifir,
lífs og friðar sólin skær ljómar dauðadölum yfir,
dauðinn oss ei grandað fær,
lífið sanna sálum manna sigurskjöld mót dauða ljær.
Kóngur lífs á krossi deyddur
krónu lífs mér bjó hjá sér,
dapur nú er dauði neyddur dýrðarlíf að færa mér.
Þótt hann æði, þótt hann hræði, það ei framar skaðvænt er.

Hann, sem reis með dýrð frá dauða,
duft upp lætur rísa mitt,
leyst úr fornum fjötrum nauða, fyrir blóðið helga sitt.
Hold og andi lífs á landi lífgjafara sinn fá hitt.

Jesús minn, sem dauðann deyddir,
deyja gef mér eins og þú,
og við þig, í ljós er leiddir lífið, æ að halda trú.
Lát mig þreyja þér og deyja, þrá mín heit og bæn er sú.

Helgi Hálfdánarson
Neander 1680

Comments are closed.