Lyse øyeblikk

Bekkpressumet – eða ekki ………….

Ég bara VARÐ að stela þessu frá StyrkeIdrett

Gildandi reglur um bekkpressumet geta verið ruglandi.
Mér varð það ljóst þegar ég hleraði eftirfarandi samtal í gymminu um daginn.
Kraftakarl (héreftir nefndur KK) og venjulegur aumingi (héreftir nefndur VA) tóku tal saman:

VA: Rosalega ertu massaður. Ertu í vaxtarrækt eða hvað?
KK: Nei, ég er í kraftlyftingum.
VA: Kraftlyftingum?
KK: Já. Ég keppi í hnébeygju, bekk og réttstöðulyftu.
VA: Ég skil. Hvað áttu í bekk?
KK: 200kg
VA: Frændi minn hefur tekið 250 kg heima í kjallaranum hjá sér, en hann er miklu minni en þú. Hann er mjög seigur. Hvað er íslandsmetið í bekkpressu?
KK: Í mínum flokki er það 260 kg.
VA: Núúú. Ég hélt það væri miklu meira. Ég þekki nefnilega mann sem ..
KK: Nei, þetta er þyngsta bekkpressulyfta á kraflyftingarmóti.
VA: Bekkpressulyfta á kraftlyftingarmóti?
KK: Já. Sami karlinn hefur tekið 270 kg á bekk, en það var á bekkpressumóti, svo það er bara bekkpressumótsmet.
VA: Nú? Í kraftlyftingum sem sagt?
KK: Nei, bekkpressa  á bekkpressumóti.
VA: Ég skil. En hvað er norðurlandametið?
KK: 270 kg.
VA: Á Norðurlandamóti í bekkpressu?
KK: Nei, á almennu móti..
VA: Ha?
KK: Já, það er sama og bekkpressumótsmetið sem var sett íslandsmótinu í bekkpressu.
VA: .. sem er meira en íslenska metið?
KK: Já.
VA: En hvað er heimsmetið?
KK: I bekk á kraftlyftingamóti eða single lift?
VA: Single lift? Ertu að meina að þeir repsi á bekknum á kraftlyftingarmóti?
KK: Nei nei. Heimsmetið í bekkpressu í kraftlyftingum er 267,5 kg.
VA: Hvað voru það mörg reps?
KK: Eitt.
VA: Ég skil, svo það er sem sagt single lift metið?
KK: Nei. Sá sem á single lift metið keppir ekki í kraftlyftingum.
VA: Hvað segirðu! Kraftlyftingaheimsmetið í bekk er sem sagt 267,5 kg. En sagðirðu ekki að norðurlandametið var 270 kg?
KK: Jú, en það var sett á íslandsmótinu í bekkpressu..
VA: Auðvitað. Svo heimsmetið í bekkpressu í kraftlyftingum er lægra en bekkpressumótsmetið frá íslenska bekkpressumótinu?
KK: Já, það passar. Sá sem á íslandsmetið á 260 kg lyfti líka  269 kg á öðru móti en það var ekki gilt sem heimsmet í bekk á almennu móti.
VA: Af því að það var á íslandsmótinu í  bekkpressu?
KK: Nei, það var á íslandsmótinu í kraftlyftingum.
VA:Nú?
KK: Já, hann meiddi sig í beygjunum og gat ekki  klárað réttstöðunni.
VA: En hann tók 269 á bekknum?
KK: Já.
VA: Hvernig met er 269 kg þá?
KK: Það er ekki met.
VA: En íslandsmetið er 260 kg, heimsmetið 267,5 kg og samt er 269 kg ekki met neinstaðar??
KK: Nei alls ekki! Þetta er sami maðurinn og á íslenska metið 260 kg. Hann setti það met eftir að hafa sett norðurlandametið á 270 kg sem auk þess var bekkpressumótsmet á íslandsmótinu í bekk. Annars var 260 kg yfir heimsmeti í bekk á almennu móti á þessum tíma.
VA: Íslandsmetið var yfir heimsmetinu en undir bekkpressumótsmetinu sem var sett á íslenska meistarmótinu í bekk?
KK: Já. Þessi karl var mjög þungur og tókst ekki að lyfta tvöfalda líkamsþyngd í deddi. Þess vegna var bekkpressan ekki gild sem heimsmet.
VA: Já, það meikar sens. Fyrst hann var svona feitur ..
KK: Á meðan hann var ekki svona þungur tók hann reyndar 270,5 í bekknum og tvöfalda líkamsþyngd í deddi.
VA: Wow. Yfir heimsmetinu!
KK: Já, en það var ekki viðurkennt sem met.
VA: Ekki? Var það sett á heimsmeistaramótinu í bekkpressu?
KK: Nei, það var á héraðsmóti í kraftlyftingum.
VA: Hvað segirðu?
KK: Það kom í ljós að bara einn dómarinn var alþjóðlegur.
VA: Alþýðlegur?
KK: Nei, alþjóðlegur. Það vantaði tvo alþjóðlega dómara.
VA: Eru innfæddir dómarar ekki nógu góðír?
KK: Sjáðu til, þeir þurfa ekki að vera útlendingar, en þeir verða að vera alþjóðlegir.
VA: Já, ég skil að það er erfitt að sjá muninn á þjóðlegum og alþjóðlegum dómurum.
KK: Svo metið var ekki viðurkennt vegna þess að annar dómarinn var ekki alþjóðlegur.
VA: En var það samt ekki norðurlandamet fyrst að gamla metið var 270 kg?
KK: Nei, þú mátt ekki setja norðurlandamet á  héraðsmóti án lyfjaprófs.
VA: En það var allavega íslandsmet, ekki satt?
KK: Nei, einn dómarinn var ekki viðurkenndur..
VA: Af hverju eru dómarar annars að skipta sér af þessu? Hafa þeir ekki nóg að gera í réttarsalnum?
KK: Á íslandsmeistaramótinu í kraftlyftingum var annar maður sem lyfti 260,5 í bekknum.
VA: Setti íslandsmet, sem sagt?
KK: Nei.
VA: Heyrðu, nú er ég farinn að skilja þetta. Það var þá íslenskt single lift met?
KK: Nei. Single lift gildir bara um heimsmet.
VA: En af hverju var það ekki íslandsmet? Var hann of feitur? Eða voru allir dómararnir innfæddir héraðsdómarar?
KK: Hann var reyndar feitur, en nógu sterkur til að dedda tvöfalda líkamsþyngd.
VA: En hvað gerðist? Meiddi hann sig?
KK: Nei, hann reyndi við 25 kg.
VA: 25 kg??
KK: Já. Hér geta menn sett met í bekk ef þeir klára mótið.
VA: Og tókst honum ekki að lyfta 25 kg í réttstöðu??
KK: Jú, en hann var í of stuttum sokkum.
VA: Hvað meinarðu? Gat hann þá ekki náð í aðra sokka og reynt aftur.
KK: Jú, hann gerði það. En þá snertu sokkarnir hnévafningana hans.
VA: Vafningana?
KK: Já, og í þriðju og síðustu tilraun gleymdi hann að taka ofan hattinn. ………..

Comments are closed.