Lyse øyeblikk

Ó faðir, gjör mig

Ó, faðir, gjör mig lítið ljós um lífs míns stutta skeið,
til hjálpar hverjum hal og drós, sem hefur villzt af leið.

Ó, faðir, gjör mig blómstur blítt, sem brosir öllum mót
og kvíðalaust við kalt og hlýtt er kyrrt á sinni rót.

Ó, faðir, gjör mig ljúflingslag, sem lífgar hug og sál
og vekur sól og sumardag, en svæfir storm og bál.

Ó, faðir, gjör mig styrkan staf að styðja hvern, sem þarf,
unz allt það pund, er guð mér gaf, ég gef sem bróðurarf.

Ó, faðir, gjör mig sigursálm, eitt signað trúarlag,
sem afli blæs í brotinn hálm og breytir nótt í dag.

Matthías Jochumsson.

Comments are closed.

Discover more from Lyse øyeblikk

Subscribe now to keep reading and get access to the full archive.

Continue reading